Dóra Hrund

Dóralóra;)

04.10.2007 14:53:25 / Dóra Hrund

Lokuð...

Jæja.. nú nenni ég þessu ekki lengur.. hef engan tíma i þetta og er bara svo löt ég nenni ekki að eyða tímanum mínum í að blogga:P

:!:-Síðan er lokuð um óákveðinn tíma-:!:


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 12:03:49 / Dóra Hrund

Jæja..:P

segja kannski einhverjir.. en ég er bara ekki enn komin í blogg gírinn.. ákvað nú samt að setja inn einhverjar línur.. fólk er farið að ýta á mann með þetta..:P

Seinasta helgi var hrikalega skemmtileg;) á föstudaginn fór ég með Stebba, Einari og Sissa inná Ólafsfjörð.. þetta var hin fínasta ferð, haha komu samt upp nokkur misskemmtileg atvik en það er ekki málið:P hehe

Svo daginn eftir var ég í vinnu, fór svo beint í staffapartý hjá N1 og þar var nú stuð:D fórum í góðan drykkjuleik þar sem sumir voru kátari en aðrir..:P

Svo var það ball með Ínu og hljómsveit og var ég komin heim frekar seint, Anna mín skutlaði mér heim.. hehe:P vaknaði svo fersk (not) um 10, dreif mig í sturtu og í vinnu kl 11 og vann til 6..:S ekki að fíla það.. en svona er lífið:P hehe

þá fór ég heim og við græjuðum pizzu og svo fór ég í esso og keypti franskar og ís.. það var veisla sagði Friðrika Bóel..:P

Svo bauð Mummi mér á rúntinn og ég kíkti smá með honum, en fór svo heim að sofa bara..

þessi vika er mest búin að fara í að læra, stússast með nemendaráði og vera almennt löt og þreytt..:P hehe

í morgun var ég hins vegar dugleg og þrumaði á hiluxnum hans pabba (eðalbíll) í sund í morgunsárið..:P synti þar í rúmar 20 mínútur, slappaði af í pottinum.. fór svo heim og fékk mér morgunmat og dreif mig svo í skólann..

erum búin að vera dugleg og gera auglýsingar sem hanga útum allt í skólanum um busadiskóið;)

 Held ég komi þessu líka á framfæri hérna:D

 Busadiskó á pakkhúsinu á föstudagskvöldið frá kl 23-03.. brjálað stuð, DJ Lilja þeytir skífum.. þema kvöldsins er LITIR og eiga þá allir að mæta sem litríkastir..:D

 Tek það svo fram að skemmtunin er að sjálfsögð alveg laus við áfengi og vímuefni..

Frítt er inn fyrir meðlimi NEF en fyrir hina eru það skitnar 500 krónur..

vona að sem flestir mæti og geri þetta að brjáluðu teiti..:D

........

Jæja lömbin mín.. hmm.. já á laugardaginn ætla ég að bregða mér í gamalt form og passa Emmu mína;) Jóna og Hilmar eru að fara í afmæli og ætlum við frænkur að hafa gellukvöld saman.. Hinar 2 eru að fara á akureyri til pabba síns.. þær voru eimmitt að eignast afskaplega sæta litla systur og eru að sjálfsögðu að rifna úr monti yfir því;)

Já núna er bara um mánuður  í að Jóna systir eigi að eiga litla gullmolann sinn.. get ekki beðið!!:D

 

jæja nenni þessu ekki lengur.. ætla að fara að fylgjast með í íslensku:D

knús og kossar:P 


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 08:41:43 / Dóra Hrund

Fyrsta skólafærslan;)

Haha það bregst ekki.. maður finnur sér alltaf eitthvað að gera annað en að fylgjast með í tímum:P

Ég sit í landafræði hjá Valdimar.. og alveg slatti af fólki:P

fer í eyðu eftir smá.. þá þarf að græja og gera:P sjibbí..

en ég stend mig vel.. og byrja skólann vel í dag.. vaknaði eimmitt korter í 8 og rétt náði uppí skóla áður en tíminn byrjaði.. Anna yndið mitt kom nebblega og sótti mig.. sjúkk! sem betur fer vinur!

Nú.. ég eyddi ekki nema um 20 þúsund kalli í skólabækurnar mínar.. JÁ EKKI NEMA! er sko ekki sátt við þetta..:P:P hehe

En seinustu dagar eru bara búnir að vera næs.. vinnan í Garðvík loksins búin nema stöku sláttur hér og þar;) sjibbí:D

Er búin að vera að vinna í Esso um helgina og svo var djamm..:) Ég, Anna og Þórveig skelltum okkur inná eyri á föstudaginn.. kaupa smá, fórum svo út að borða á Greifanum og svo var bragðarefur í Lindinni og brunað heim á tónlistarveislu.. sem var æðisleg:) fannst þetta agalega skemmtilegt og fólk má vera stolt af þessu:) jappjapp;)

Svo fór ég á djammið, fórum í partý heim til elísu.. hehe:P svaka partý, vorum kannski 7:P svo var kíkt á baukinn en það var enginn stemmari svo ég og Anna fórum á rúntinn;)

Svo var bókamarkaður og tilheyrandi vesen á laugardaginn.. og svo var ég að vinna til 12... skellti mér þá heim í sturtu og á djammið:p sem var einstaklega skemmtilegt bara.. nóg af fólki og bara stuð;) var komin heim um 6 leytið og mætti hress í vinnu í Esso kl 11.. þar var líka brjálað að gera því við vorum bara tvær restina af vaktinni.. :S en allavega, eftir vinnu fór ég á rúntinn með Hauk mínum;) svo borðaði ég heima og dreif mig aftur út með Hauk og Sissa;) já stuð stuð stuð:D

Allavega kom blogg handa ykkur:D

puss o kram:D

Dóra


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 00:33:55 / Dóra Hrund

Ótrúlegt en satt...

... þá nennti ég að skrifa smá blogg;) svona fyrir ykkur sem enn kíkið hingað inn:P

Sumarið er búið að vera hið fínasta.. þó ég hefði verið til í meira gott veður og svona.. en það er ekki alltaf hægt að fá allt sem maður vill..

Ég er búin að rúnta eins og brjálæðingur (að sjálfsögðu).. búin að hitta vini mína og vera með þeim og bralla helling af skemmtilegum hlutum.. Er orðin 18 ára og versló og mærudagarnir búnir.. og núna fer bara að styttast í skólann.. það er spurning hversu mikið ég á eftir að nenna að blogga í vetur.. en ég verð nú allavega duglegri en í sumar:p ég bara varð að fá smá pásu:)

Vinnan í Garðvík er búin að vera fín, en ég hlakka samt smá til að hætta að vinna og fara í skóla.. 

Er búin að kynnast fullt af skemmtilegu fólki í sumar og held að veturinn verði bara hinn fínasti..

svo fara svíarnir sem vinna hérna á sláturtíðinni að koma og ég hlakka bara mjög mikið til að geta vonandi æft sænskuna mína;)

Annars hef ég voðalega lítið að segja, ákvað bara að skella pínu hérna inn:) fannst svo heimskulegt að vera með heimferðarbloggið endalaust:p

jæja.. þangað til næst;) endilega skella inn kveðju:D

Dóra 


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 22:56:43 / Dóra Hrund

Heimferðarsaga;)

Guð þetta verður örugglega langt.. og ég sem ætlaði snemma að sofa.. en þar sem fólk virðist bíða spennt eftir að lesa þá bara get ég ekki dregið þetta lengur:P

það er nottla brjálað að gera í að rúnta:P haha og hitta allt fólkið;) reyndar er ekki lengur jafn spennandi að keyra bíl lengur því ég keyri alla daga allan daginn er mér farið að finnast.. þar sem að vinnan sem verkstjóri snýst mest um að keyra á milli með hitt og þetta, koma stelpunum í gang segja þeim til.. og mér finnst ég bara ekki vera að gera handtak allan daginn en enda alltaf jafn þreytt samt.. ætli þetta sé ekki bara þreytandi að vera endalaust skipuleggjandi og skipandi fyrir:P hehe

Allavega.. ég byrja á byrjuninni..

Ég kvaddi Titti og strákana með tár í augunum og steig uppí lestina með Vinicius, Mayu, Chalitu, Maglen, Nyssuh og Fame og hélt til Stokkhólms.. þar tók við smá bið eftir rútunni en Patch frá USA skemmti mér ágætlega í biðinni.. hann er ekkert eðlilega fyndinn;) En svo kom rútan og við héldum á staðinn sem við gistum á.. höfðum þetta útaf fyrir okkur og það var ægilega næs;) það var strax ákveðið að það yrði enginn svefn.. (úff!) já við komum okkur fyrir, borðuðum og svo voru alls konar leikir og myndatökur og umræðuhópar en flest allt þetta leystist út í vitleysu og fíflalæti eins og okkur einum er lagið..:P svo þetta varð aldrei neitt voðalega alvarlegt:P jahá.. svo um kvöldið var að sjálfsögðu haldið danspartý, en fyrst fórum við þónokkur og ákváðum að fara að synda í vatninu þarna hjá í kvöldsólinni.. það var ægilega næs og svo fífluðumst við helling;) svo var svanur að synda þarna og Patch ákvað að hræða hann og stökk ægilega nálægt honum.. haha.. nema svanurinn réðst bara á okkur stuttu seinna!! við reyndar náðum að komast undan.. (hefði sko ekki viljað fá eitthvað svona kvikindi goggandi í mig eða eitthvað álíka)!! en já.. svo var haldið og dansað og dansað, og svo var farið út að spjalla og dansað meira.. og svo vorum við mest bara að labba á milli hópa að spjalla og svona.. ég sofnaði í smá tima og strákarnir helltu vatni yfir mig.. og orguðu að það væri enginn svefn! var alls ekki sátt svo ég sótti mér vatnsflösku og hellti yfir þá á móti! en svo kom morgunn og þá hélt ég með fyrstu rútunni útá flugvöll.. þurfti að kveðja fullt af vinum mínum og grét eins og ég veit ekki hvað.. amk þegar ég kvaddi Luizu..:( en þetta reddaðist og það kom spenningur í mig fyrir að hitta mömmu og pabba og alla heima:D svo ég hresstist við.. eyddi reyndar allt allt allt of löngum tíma í fríhöfninni því ég var náttúrulega mætt um 8 og ég átti flug kl 14:10.. en stelpurnar frá þýskalandi voru með mér.. þær voru í svipuðum aðstæðum..:p en svo loksins flaug ég heim.. og flugið var meira að segja frekar snemma..! 20 mínútum á undan áætlun:D svo þegar ég kom í gegnum hliðið var ég tekin í tékk og þurfti að renna töskunni minni í gegn.. kallinn fór að tuða yfir einhverri flösku sem ég væri með og ég var svona viss um ég væri ekki með neina flösku! en þá hafði ég gleymt ég hefði tekið með mér eina flösku af blue curaco eða eitthvað álíka:P svo ég útskýrði það fyrir honum.. og þá fékk ég að sjálfsögðu að fara i gegn.. haldiði svo ekki að ég hafi starað og starað og skildi ekkert hvar mamma og pabbi voru þegar pabbi allt í einu fór að stara á móti mér..! þá bara horfði ég á hann og þekkti hann ekkert!! (smá vandræðalegt):P mamma hafði farið á klósettið svo ég endaði á að bíða eftir henni..:P:P það var skroppið smá í einhverja búð fyrir pabba, svo til konunnar sem selur okkur vinnufötin og ég fékk vinnubuxur.. agalega svalar, svartar og neongular;) og svo var það kentucky og svo keyrt heim;) var komin heim um hálf 12.. keyrði heim frá akureyri og fannst þetta ekki mikið mál:p  hehe var á maximunni og hún er sjálfskipt..:p svo kom þórveig og unnur báðar að heimsækja mig minnir mig.. en ég stakk bara af eftir smá á rúntinn á kagganum hennar heiðrúnar minnar og þórveig kom með okkur smá.. svo fór ég heim með heiðrúnu og kúrði hjá henni þar til hún fór í vinnu þá brunaði ég heim á ömmu þrumu og fór aftur að sofa.. vaknaði við ormana mína sem voru svo spenntar að þær gátu bara ekki beðið lengur:P

ég bauð þeim smá á rúntinn, gerði pylsupasta handa okkur í hádeginu og svo fór dagurinn mest í að rúnta og hitta fólk:P ég eimmitt var á beinskipta subaro og það var ekkert mál:D svo ég hefði ekkert þurft að vera að stressa mig..

seinustu dagar eru búnir að fara í vinnu og rúnt:P algjörlega:P ég er að verða fín á vinnubílana sem segir mér að mér hefur farið fram í akstrinum enda þetta nánast eintómar hrúgur á hjólum:P hehehe..

en um helgina skellti ég mér á ball með Heiðrúnu, Þórveigu, Unni, Áslaugu, Melkorku og Silju;) eða þetta var liðið sem maður hitti á ballinu.. það var illa ógeðslega gaman þó það hefðu verið fáir.. hljómsveitin Dalton og þeir voru bara hressir;)

allavega.. nú er klukkan orðin allt of margt og ég að fara að leggja mig;) hættiði svo þessu tuði ég nenni ekkert að blogga meira:P hehehe.. ekki nema eitthvað sérstakt verði..:p

 ég er komin í sumarfrí!!:P

Dóra:D


» 11 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 00:20:10 / Dóra Hrund

3 dagar

Heill hellingur sem er búinn að gerast síðan síðast.. og mér finnst bara langt síðan ég skrifaði seinustu færslu, en samt svo stutt.. tíminn flýgur gjörsamlega úr höndunum á mér og mér finnst ég bara vera búin að vera í smá paník með að hitta alla og svona.. og kveðja.. úff þetta er eitt af því versta sem ég hef upplifað.. Já, þetta er það allra versta við að gerast skiptinemi.. að þurfa að kveðja alla sem ég er búin að kynnast og þykir vænt um.. og ekki vita hvenær ég hitti þau næst..

Ég er búin að gera helling af skemmtilegum hlutum.. ég, Titti og strákarnir fórum í smá skoðunartúr í bát sem heitir Paddan.. þá siglir maður um í ánni sem liggur gegnum Gautaborg og smá í höfninni og lærðum helling og ég tók fullt af myndum;) eitthvað sem maður bara verður að gera þegar maður er búinn að vera í Göteborg um sumar:D

Á fimmtudaginn fór ég til Jörlanda til gömlu fjölskyldunnar í seinasta skiptið.. við spiluðum Buzz, sungum í singstar, borðuðum Taco og spjölluðum um allt það skemmtilega sem við gerðum saman á meðan ég bjó hjá þeim:D og svo gistum ég, Ida og Karin úti á svölum um nóttina.. það var ægilega næs;) morguninn eftir vöknuðum við snemma og fengum okkur öll morgunmat saman.. og svo var komið að því að kveðja.. og mér þótti það afskaplega erfitt..:/ svo tók ég strætó heim.. þegar þangað var komið var byrjað að mígrigna.. ég borðaði smá hádegismat og hjálpaði svo Titti að búa til midsommarkransa.. eða blómakransa;) svo klæddum við okkur upp í regngalla og drifum okkur út á midsommarhátíð.. þar var nú ekki mikið um fólk en það var nú samt eitthvað.. ég fór með Felix að dansa í kringum stöngina sem var nú bara alveg fínt;) hann var búinn að kenna mér að syngja små grodorna og dansa með svo ég stóð mig bara vel;) en svo var haldið heim og ég dreif mig í sturtu.. svo fórum við í mat til vina Titti og Goran og þar var ég látin smakka alls konar heimabruggað vín og fleira í þeim dúr..  ég var látin taka skot af einhverjum viðbjóði og svo var mér bæði boðinn bjór og vín með matnum.. (því ég var sko alveg næstum því 18 ára):P hahaha.. svo þegar ég hélt af stað með strætó inní bæ að hitta Jessicu þá var ég ansi rjóð í kinnum og kát;) hahaha..

TinyPic image

En okkar leið lá með strætó heim til frænku Sofie.. Sofie er í bekknum mínum og ágætis vinkona mín.. hún vildi endilega að við kæmum svo við ákváðum að drífa okkur bara með.. Þegar við komum þangað beið Natalie eftir okkur og labbaði með okkur í partýið.. en þegar við komum inn voru þar nokkrar stelpur sem ég þekki og stelpur úr bekknum sem orguðu SURPRISE!:D þá voru þessi yndi búin að hópa sig saman til að kveðja mig..:) mér fannst það nú ekkert leiðinlegt:) svo kom fullt af fólki í partýið og það var bara rosalega gaman í því.. en ég fór nú samt ekkert of seint heim því ég var svo ofboðslega þreytt..

Í dag vaknaði ég nú bara frekar seint:P lúxus að fá að sofa bara eins og maður vill:P best að nýta það:P hahaha.. þegar ég kom niður voru Milovan pabbi Gorans, Maria mamma hans og Zoran bróðir hans komin í heimsókn.. við borðuðum öll sama grillað lamb og ég gerði sósuna hennar Jónu sem sló í gegn:D svo í eftirrétt voru jarðaber og rjómi og svo vatnsmelóna sem var sjúklega góð:D svo var bara setið úti í sólinni og haft það gott.. ég lék við Sixten og Felix og svona;)

Svo dreif ég mig í bað og svo heim til Jessicu.. við sátum og horfðum á sjónvarpið með einu auga og spjölluðum.. röltum smá út til að kaupa popp.. svo þurfti ég að fara heim.. og kveðja Jessicu mína.. svo sat ég í strætó og grét eins og asni.. og allir gláptu á mig:p hehe..

Á morgun er ég að fara að hitta Mariu Hillinge og fjölskyldu og fara með þeim í heimsókn til íslensks vinar þeirra sem vildi svo endilega hitta mig:) og svo ætla ég að hafa það næs með Titti og Goran og strákunum síðasta kvöldið mitt með þeim..

á mánudagsmorgun tek ég lestina til Stockholm og á þriðjudag flýg ég heim..

Thats all for you folks;) og eftir að ég kem heim nenni ég því miður ekki að blogga lengur.. allavega ekki í sumar:P

Takk fyrir öll kommentin í seinasta bloggi! ég hlakka líka voðalega mikið til að hitta ykkur öll:D

Dóra:D


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 13:39:48 / Dóra Hrund

Ein vika

Jæja þá er ég loksins flutt inn til Titti.. búin að sofa hérna eina nótt.. í alveg sjúklega góðu rúmi sem þau keyptu bara fyrir mig því ég var að flytja inn.. hversu sætt:D

ég er búin að vera að gera alls konar skemmtilega hluti.. Luiza er búin að vera í heimsókn og það var æði að fá hana og við skemmtum okkur bara hrikalega vel.. Titti fór með okkur útum allt að skoða staði og að versla og svona.. alveg frábært:D

ég er búin að pakka niður öllu og á morgun fer ég og sendi kassana mína..

Á eftir koma Nina, Björn, Elsa, Filip og Emil í mat.. ætlum að grilla fisk;) ég og Titti fórum að versla áðan og stóðum svo sveittar við að græsa:p hahaha..

ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur.. heimferðin nálgast.. svo er að koma Midsommar hérna og ég held það verði æði:D

æj ég veit ekki til hvers ég var að blogga:p en allavega.. endilega skilja eftir komment!;)

puss och kram:D


» 17 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 01:49:54 / Dóra Hrund

sommartider hej hej!

Jæja þá er ég mætt..

Það er alveg heill hellingur búinn að gerast hjá mér síðan seinast! á laugardaginn var ekkert eðlilega sjúklega heitt.. og ég og Nina fórum að versla, gerðum kjúklingapastasalat og svo hittum við Titti og strákana og fórum niðrá strönd og syntum smá í sjónum, lékum í fjörunni og lágum í sólbaði.. svo fór ég út um kvöldið og hitti Jessicu og við röltum um bæinn í góða veðrinu og settumst á kaffihús og höfðum það næs..

á sunnudaginn fórum við í mat til Titti og Goran og vorum þar svona mestan part af deginum;)

á mánudaginn sótti Titti mig og við keyrðum til Ullared sem er riiiiiisastór markaður með ÖLLU sem maður getur hugsað sér.. þar náði ég að kaupa mér heeelling af fötum - MJÖG ÓDÝRT og webcameru og hetfóna á undir 16 þúsund.. það er sjúkt!!! Allavega svo fór ég heim með Titti og sat þar og spjallaði smá en svo skutlaði hún mér heim um kvöldið..;)

á þriðjudaginn gerði ég lítið.. er mest búin að hanga í sólbaði og hafa það næs.. fara í göngutúra og láta mér leiðast..;) hehe

Svo kom Luiza mín á miðvikudaginn:D við röltum um í bænum, fórum heim og út að borða með fjölskyldunni því Nina og Björn áttu 20 ára brúðkaupsafmæli;) fengum voða góðan mat;)

Í gær fórum við á skólaslit;) ég fékk rosa sæta bleika rós frá bekknum mínum;) þau sögðust meira að segja eiga eftir að sakna mín.. hahh:p svo fórum við á flakk með Titti.. fórum og skoðuðum gamlan kastala í Kungälv og þar hafa margir íslenskir víkingar verið!:D ógeðslega flott að sjá:D Luiza tók helling af myndum og ég ætla að reyna að stela þeim sem fyrst:P hehe.. svo fórum til til Gunnebo slott og borðuðum hádegismat;) svo tókum við rúnt um Göteborg og skoðuðum fullt af skemmtilegum stöðum..;) og svo fór ég og lagði mig fram að mat á meðan Luiza var í tölvunni.. ég var svo þreytt.. tókum svo kvöldið í smá gláp að sjálfsögðu..;)

vöknuðum um 11 í morgun.. drifið sig í sturtu og græja.. borðuðum morgunmat og fórum svo í Liseberg.. það var eimmitt mitt 7 skipti í Liseberg;) hehehe.. svalt;) en já.. við eyddum öllum deginum þar og svo þegar við komum heim leigðum við okkur 2 hryllingsmyndir og græjuðum taco.. og svo erum við búin að liggja uppí sófa, ég, Luiza og Filip og glápa.. jepp good times;)

Á morgun er ætlunin að fara á ströndina ef það verður gott veður og liggja í sólbaði;) næs..  og svo er djamm um kvöldið.. ætlum að sjálfsögðu á Gamle Port.. Jessica og Lino ætla líklega að koma, en ég veit ekki með Natalie.. sjáum til;) hehe

Svo á sunnudaginn fer Luiza heim og ég klára að pakka og græja og flyt svo inn til Titti og strákanna..;) og þá er nú ekki nema rúm vika í að ég komi heim lömbin mín:P

Segjum þetta gott.. hendi inn nokkrum myndum við tækifæri.. þegar hlutirnir fara að róast smá;)

puss och kram!!:*


» 12 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 22:13:59 / Dóra Hrund

Sumarið er tíminn;)

Já og þetta er sko alveg pottþétt tíminn.. ég er svo til búin í skólanum:D á bara eftir að fara á skólaslit.. jáá jibbííí:D

Fékk að heyra svaka slúður úr skólanum mínum.. alveg rosalegt.. sögukennarinn minn, sem er frekar spes maður, með sítt hár og gleraugu.. (ekki að það sé eitthvað að því, hann er bara spes í útliti).. hann var með krökkunum sem voru að útskrifast í veislunni sem þau héldu um kvöldið.. (hér í Sverige er útskrift eða Studenten alveg rosalegt mál og ég segi ykkur betur frá því hér seinna) en svo ég haldi áfram með söguna.. Kallinn varð blindfullur, fór í sleik við amk 3 af stelpunum (nemendunum þá)! og svo endaði á að hann var sendur heim því hann var svo fullur.. já ég veit! ógeðslegt.. en! það er ekki búið.. Daginn eftir vorum við ílandafræðitíma og þá breiddist sagan út um allan bekkinn og örugglega allan skólann.. ekki nema það að við erum svo með sögutíma eftir landafræði.. þar fengum við að horfa á einhverja stuttmynd í 5 mínútur og svo segr hann alveg kaldur.. þið megið bara fara heim, ég hef ekki orku í meira.. ég er svo ógeðslega þunnur..! og þar með staðfesti hann allt slúðrið og það sem ég er hneyksluð!!! úff!!! jæja nú getiði ekki sagt ég komi aldrei með slúður:P hahaha

Allavega.. ég horfði á leikinn.. vildi óska að ég hefði bara sleppt því.. var allavega ekkert of stolt.. en svona er lífið..:S

Ég og Titti fórum í gær til Lager 157 sem er outlet búð svona 1 og hálfum tíma frá Göteborg.. þar verslaði ég alveg eitthvað;) svona merkjavörur sko hræódýrt.. þið sem þekkið mig vitið nottla að ég geng BARA í merkjavörum.. tíhí..:P þegar ég kom inn þekkti ég 3 merki.. Diesel, Levi´s og Frank Paul því Elsa er endalaust í apabolnum sínum sem er s.s. frá Frank Paul.. ég reyndar keypti ekki neitt frá þessum merkjum.. ég keypti mér hvítar gallabuxur á 2 þúsund krónur.. (Elsa reyndar þekkti merkið, en ég hef aldrei heyrt um það)..:P Svo keypti ég 2 skópör á 3 þúsund krónur.. Sverige peysu sem er agalega svöl.. svona gamaldags Adidas peysa;) á 3500.. og svo þrenna hlíraboli sem ég hugsaði mér að hafa í sumar í vinnunni.. á 1200 krónur;) já ég var bara sátt sko;) Sá reyndar tonn af Vans skóm á 3 þúsund krónur.. en ég er sátt við skóna sem ég keypti.. 2 pör eru jú betri en 1.. hahhaa

Í dag lá ég í sólbaði og bókstaflega sviiitnaði!! Það var um 27 gráður í skugganum.. ímyndið ykkur garðinn minn sem er umlukinn trjám, enginn vindur og sólin beint niður til að grilla mann.. ég drakk þónokkra lítra af vatni í dag enda nauðsynlegt þegar það er svona heitt.. hehe ekki að ég sé að kvarta;) ætla að njóta þessa daga sem ég á eftir og reyna að verða sem mest brún:P en já, svo dreif ég mig í sturtu og græjaði mig og fór svo í útskriftarveislu hjá Stinu í stuðningsfjölskyldunni minni.. Hún var ægilega fín og flottur og góður matur;) ég var nú samt mest með strákunum, hehe.. kemur einhverjum það á óvart?:P neinei bara djók.. svo sótti fjölskyldan mín mig og við fórum í aðra útskriftarveislu hjá dóttur vina Ninu og Björns.. þar þekkti ég ekki marga en auðvitað er alltaf nóg um að spjalla þegar fólk heyrir að ég sé frá Íslandi.. hehe.. ekki slæmt;) Það var svo æðislegt veður og allir útí garði.. vitiði, þetta var bara alveg frábært..;)

Um helgina ætlum við að passa Felix og Sixten því Titti og Goran eru að fara í brúðkaup í Stockholm.. það verður bara stuð;) hehe.. Svo erum við stelpurnar að skoða það, allavega ég og Jessica, að fara á Gamle Port annað kvöld.. erum með boðsmiða;) En við sjáum bara til hvað gerist..:P

Luiza kemur á miðvikudaginn.. verður æði að fá hana hingað:D sýna henni borgina, fíflast með henni.. fara í sólböð og svona.. ég lofa að þá verð ég duglegri með myndavélina mína..:p hehe.. fólki finnst ég of löt við að taka myndir:P hehehe

Jæja segi þetta gott.. ætla að fara að leggja mig svo e´g komist sem fyrst útí sólbað á morgun;) kossar og knús!:*


» 14 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 15:43:59 / Dóra Hrund

Frábær vika;)

Hæ ég er mætt með bloggið sem ég lofaði.. takk fyrir öll kvittin:D þið eruð best í heimi;)

Hmm.. kannski ég segi ykkur frá vikunni minni:p ég man allavega ekki mikið eftir henni fyrr en á miðvikudag.. þá kvöddum við Lulle, Tette, Basse og Lukas.. þau flugu til Japan og að var svo erfitt að kveðja þau.. get varla ímyndað mér hvernig þetta verður að kveðja fólkið hérna.. jésús..:( Allavega, þegar ég kom heim hringdi ég í Jessicu og spjallaði við hana í frekar langan tíma.. en svo var e´g mest bara að slappa af og svo þreif ég herbergið mitt og efri hæðina áður en ég fengi heimsókn daginn eftir.. ;)

fimmtudag.. þá fór ég niðrá lestarstöð og náði í hana Unni..;) (Unni Erlings, Þórveig mín, til að svara kommentinu þínu) það var æðislegt að hitta hana! Við röltum um alla Göteborg og höfðum það næs.. borðuðum á Pizza Hut og svona;) svo tókum við strætó heim til mín og ég byrjaði að græja mat.. sýndi henni svo húsið og svona:) horfðum smá á sjónvarpið og svo borðuðum við indverskan mat að sjálfsögðu.. hehe eins og vanalega þá var enginn heima nánast, Unnur náði að hitta Björn og Filip því þeir borðuðu með okkur:p hehe.. Svo fórum við eitthvað að gellast og græja okkur;) Svo var bara haldið niðrí bæ.. þar biðum við eftir stelpunum, Natalie og Jessicu.. og svo loksins komu þær.. haldiði þá ekki að ég hafi fattað að ég skildi skilríkin mín eftir heima.. helvíti.. svo Unnur fór inn á Sticky Fingers (klúbbinn) með stelpunum en ég tók strætó heim og sótti draslið mitt.. svo var Nina svo góð að skutla mér aftur niðureftir svo ég var nú ekki eins lengi og ég hélt..

Það var alveg ágætt á Sticky en DJ-inn hefði mátt vera betri.. þetta leit líka út fyrir að vera hommakvöld.. hehe sumir strákarnir voru í góðum gír þarna:p hehehe.. eða þá hafa þeir bara verið svona fullir.. hehehe..

Allavega nenntum við ekki að vera neitt gríðarlega lengi þarna.. svo við fórum á Makka dónalds og fengum okkur að borða..;) svo var tekinn sporvagn áleiðis heim.. svo sátum við unnur og biðum eftir strætó.. en þá kom það í ljós að enginn strætó gekk um nætur á virkum dögum.. svo við máttum gjöra svo vel og hringja eftir taxa.. já svaka stuð.. en þetta reddaðist:P Svo sváfum við af okkur morgunmatinn, fórum svo niðrí bæ og röltum smá.. Unnur keypti sér skó.. en svo þurfti hún að taka lestina til baka til Skövde þar sem bróðir hennar býr.. en þetta var alveg snilld og núna er ég farin að hlakka svo mikið til að koma heim:) Takk Unnur fyrir heimsóknina;)

Svo á föstudaginn fór ég ekki í skólann.. er komin í frí í stærðfræði og þau voru með samræmt munnlegt enskupróf og ég var ekki í þeim hópi.. Allavega held ég að ég hafi bara haft það næs heima og svona;) lagði mig smá yfir daginn því ég var svo þreytt eftir að hafa vakað svona lengi kvöldið áður:p Svo fórum við heim til Titti og Goran og strákanna.. og borðuðum þar öll saman;) ægilega góðar pizzur, sallat, hvítlauksbrauð og svo í eftirrétt sænsk jarðaber með ís og rjóma.. naaami namm! En svo sat ég bara heima um kvöldið og horfði á sjónvarpið og fór svo fljótlega bara að leggja mig..

Í gær, laugardag vaknaði ég tiltölulega snemma;) ég fór að versla með Ninu og svo fórum við að tala við Erik í USA á skype.. sem var fínt;) svo græjaði ég mig og svona.. borðaði svo með fjölskyldunni og svo dreif ég mig út að hitta stelpurnar.. Gamle Port varð fyrir valinu eins og vanalega enda frábær klúbbur:D við dönsuðum eins og brjálæðingar og ég skemmti mér agalega vel:D til að svara kommentinu þínu Jóna, jú þetta var frekar snemmt fyrir mig á sunnudagsmorgni en málið var að ég var ekki enn sofnuð:P hehehe..

Allavega.. í dag er ég búin að taka því rólega.. svaf alveg fram að hádegi.. svo fór ég með Titti og strákunum að velja fiska í fiskabúrið þeirra.. Mamma hringdi þegar ég var á heimleiðinni;) gott að spjalla við hana:* Við fórum í gegnum bílaþvottastöð og ég var örugglega meira spennt heldur en strákarnir að sjá hvað myndi gerast:p hahahaha..

Allavega, við Nina erum búnar að vera að græja indverskan mat í allan dag:D á morgun er matarboð hérna því vinnufélagar Björns eru að koma.. Og þessvegna erum við að elda indverskan mat á milljón;) Indverskur matur er sjúúúklega góður sko!!;) og ég er að reyna að læra.. hehehe:p En já allavega, í kvöld ætla ég bara að taka því rólega og horfa á TV.. á morgun er ég í fríi svo ég veit ekki beint hvað ég á að gera af mér.. en ég finn eitthvað útúr því..:D Svo á miðvikudaginn er þjóðhátíðardagur Svía og á fimmtudaginn á Karolína á afmæli:D loksins 18!!;)

Heiðrún varð líka 18 ára þann 30 maí.. til hamingju með það:*

Luiza vinkona mín frá Brazil ætlar að koma að heimsækja mig 13 júní þegar Alexandra Ada verður 7 ára!!:O og fer aftur heim 17 júní.. þá flyt ég inn til Titti og strákanna því Goran fer til USA þá og ég ætla að hjálpa henni með strákana.. Svo fer fjölskyldan mín út til USA 20 júní og þá er komið að kveðjustund.. svo fer ég til Stockholm 24 eða 25 og kem heim þann 26.. það er ekki mikið eftir..:O Jæja segi þetta gott í bili..;)

Ætla að þakka fyrirfram fyrir öll kommentin:P hahahha;)

Dóra... knús*


» 12 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 15:48:08 / Dóra Hrund

Du ska inte tro det blir sommar..

Já ég er mætt;)

Er nú samt að spá smá í kvittin á þessari síðu.. eru einhverjir njósnarar þarna úti eða:p því t.d. í dag eru 55 búnir að kikja hingað og samt eru ekki nema 9 gömul komment.. já þurfið að bæta úr þessu:P en svo sem, ég fæ alltaf kvitt frá fastagestunum og það gleður mann alltaf jafn mikið.. en væri ennþá meira skemmtilegt ef fleiri köstuðu kveðju;)

Vikan er svo sem ekki búin að vera neitt viðburðarík.. mér gekk vel í fyrirlestrinum og voru allir voða ánægðir og finnst Ísland agalega flott land núna og eru meira að segja að hugsa um að fara í bekkjarferð til íslands á næsta ári.. haha sjáum til hvering það á eftir að ganga:P

ég fór á söngleikinn RENT í Kungälv sem Ida hjálpaði til við að leikstýra og svona;) þau buðu mér;) þá var Karin komin heim frá Íslandi;) voða gaman að hitta hana.. hún og Ida ætla að koma að heimsækja mig næsta sumar;) því þær hafa núna báðar verið á Íslandi og bara séð suðurlandið;) svo nú er komið að norðurlandi o.fl.. Svo ætlar Linnea systir Mayu líka að koma og vonandi öll fjölskyldan hennar því að þau eru að fara að heimsækja fjölskyldu Karen (hún er konan hans Johans, bróður Mayu og er íslensk) og þau búa líka á norður eða austurlandi:p

Svo ætlar fjölskyldan mín hérna að koma næsta sumar;) oo það er svo gaman að allir vilja koma að heimsækja mann.. Jessica og Natalie ætla að koma eins fljótt og þær geta:P hehehe

Hmm.. svo á laugardaginn gisti Jessica hjá mér.. en fyrst fórum við á kaffihús niðrí bæ og höfðum það gott.. já þetta er bara búin að vera róleg helgi;) í gær var svo kveðjupartý fyrir Lulle og Tette og strákana.. ég gerði forrétt.. rækjuréttinn hennar Jónu.. það er meira að segja hellingur eftir svo ég var sátt (planaði að eiga smá þangað til í dag og svona) hehe

Svo kom pakkinn loksins í dag! Jóna takk fyrir öll fötin! þau eru æði!!!:* og flotta kertið!!! hef samt einhvern grun um að það sé frá Magneu minni;) mamma sendi sjampó og ég skellti mér beint í sturu og líður svona vel í hausnum núna.. exemið var alveg farið að segja til sín..

hmm.. ég er í einum tíma á morgun og þar ætlum við að horfa á myndina supersize me.. svo er ég í fríi á miðvikudag:P ég er algjörlega hætt í sænsku og sálfræði og viti menn.. ég fékk bara fína "lokaeinkunn" í þeim báðum:D hahahaha..

Svo kemur Unnur til Sverige á morgun að heimsækja bróður sinn.. ég er miiikið að spá í að skella mér þangað uppeftir og hitta hana;) aldrei að vita nema hún myndi vilja koma hingað eða eitthvað:P við sjáum til:D

Hmm.. ég er alveg tóm.. og þetta er orðið ágætlega langt.. ég skrifa betra blogg seinna.. og e´g lofa að láta ekki líða svona langt á milli næst;)

kossar og knús!!!


» 22 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 23:14:15 / Dóra Hrund

Að missa hárið??:O

Já nú er klukkan orðin of margt, ég ekki sofnuð og búin að naga neglurnar sem ég var búin að safna svona fínt.. já núna er ég stressuð.. þið heppin að þá finn ég mér eitthvað gáfulegt að gera.. sem sagt, blogga.. skil samt ekki þetta tuð í ykkur:p mega ekki líða 5 dagar á milli blogga.. hehe;)

Já ég hef svo sem frá mörgu að segja en það er spurning hvort maður nennir því:P hehe..

Allavega seinasta helgi var alveg frábær.. Liseberg var sjúúklega skemmtilegt! Ég fór í öll stóru tækin sem ég hafði ekki þorað í, öskraði gjörsamlega úr mér lungun og hélt á stundum að þetta væri mitt síðasta.. en vel þess virði, adrenalínið flæðandi á fulle fart!;) smá sænska:P þið hafið gott af því..;) Svo var haldið heim til David, einn af sjálfboðaliðunum, og við borðuðum pizzu og horfðum á Jarhead.. sem er frekar leiðinleg mynd.. en, skiptir ekki öllu:p Svo kvaddi ég Junior og vottaði alveg fyrir nokkrum tárum.. hann fór eimmitt heim í dag..:( Jahá svona er þetta.. svo var bara búið að læsa þegar ég kom heim! Og ég stóð úti og bankaði alveg heillengi, en loksins vaknaði Nina og hleypti mér inn.. ég gleymdi nebblega lyklunum!!:$

Á laugardaginn var heldur betur nóg að gera.. ég tók mig til og allt þetta skemmtilega.. þaut svo út um 1 leytið, tók strætó niðrí bæ, rútu til Jörlanda og Ida pikkaði mig svo upp á leiðinni í gamla húsið mitt.. já það var gott að koma til baka;) sjá gamla herbergið, Idu herbergi núna.. og það var meira að segja meira rusl í því en þegar ég var upp á mitt versta;) hehe.. Svo keyrðum við til Skärhamn þar sem veitingastaðurinn var.. Haldiði ekki að Håkan hafi pantað öllara handa mér og Mayu.. við sátum sáttar að sumbli.. hehe nei segi svona;) Svo kom forrétturinn, fiskisúpa.. sem var mjög góð, en samt ekki hægt að borða mjög mikið af henni.. Svo eftir frekar stuttan tíma kom aðalrétturinn.. ég fékk mér ofnbakaða ýsu með rækjum, sósu og bakaðri kartöflumús.. við erum að tala um loooostæti!!! Úff!! En.. þar sem það leið svo stuttur tími á milli forréttar og aðalréttar þá gat ég ekki borðað það mikið.. Svo frekar stuttu seinna kom eftirréttur og kaffi.. þar fékk ég hindberjasorbét og súkkulaðiköku.. rétt nartaði í það en Erik kallinn sá um að skófla þessu í sig:P Ekki málið.. Já ég fékk líka svona áfall að hitta hann.. við erum að tala um 5 mánuði síðan ég sá drenginn seinast.. og hann er nánast orðinn jafn stór og ég og orðinn dimmraddaður!!:O já mikið getur gerst á 5 mánuðum greinilega.. Karin var á Íslandi en hringdi samt til að segja hæ;) Krúttið.. Haldiði ekki að hún hafi séð átrúnaðargoðið sitt hana Carolu á Íslandi!! Jább við Gullfoss.. hahaha.. svenska dívan Carola úr júró mætt á klakann.. ekki heyrði ég neitt um það.. en allavega, svo var maturinn búinn og mér skutlað beint á stoppistöðina því ég var að fara á djammið með stelpunum í bænum;) Rútuferðin gekk bara fljótt fyrir sig og stelpurnar biðu eftir mér á Central stationen;) Svo var haldið beint á Gamle Port og dansað heillengi;) En ég fór nú samt tiltölulega snemma heim í þetta skiptið;) já maður má nú ekki gleyma sér í gleðinni..

Á sunnudaginn gerði ég nákvæmlega bara EKKI NEITT.. sem var freekar næs bara;) ég svaf til 2! já ef aldrei sofið jafn lengi síðan ég kom til Sverige.. málið var að allir héldu að ég hefði sofið í Jörlanda.. (einhver skrýtinn misskilningur) en ég eyddi deginum í að spjalla við Lulle og horfa á sjónvarp og vera á msn held ég? Svo fór ég að versla með Lulle og Tette..

Á mánudaginn var ég agalega löt, skreið framúr og hugsaði, ég nenni bara ekki í sænskutíma.. Svo ég skrópaði.. já ég veit, skamm skamm!:p En ég spjallaði bara enn meira við Lulle og dreif mig svo af stað til Jörlanda.. já! enn einu sinni..! Svo labbaði ég þónokkra kílómetra heim til Mayu og rifjaði upp eeeeldgamla tíma sem var reyndar fínt:P Ég græjaði svona french manikjúr á hendurnar á Mayu.. (reyndi allavega eftir bestu getu).. svo krullaði ég hárið á henni og hún var svona líka sæt og fín.. hún var nefnilega að fara á útskriftarballið sitt;) Þvílík prinsessa.. hún er líka komin með svona fínt ljóst hár svo me´r fannst hún minna mig á Marilyn Monroe eða eitthvað.. allavega varð hún glæsileg;) og ánægð með frammistöðu mína svo þá var mínu takmarki náð.. ég fékk svo far útá strætóstoppistöð og beið þar eftir rútunni heim.. svo þegar heim var komið fór ég að hjálpa Lulle við að elda mat.. úff fengum sko góðan grillaðan kjúlla og sjúklega góðar kartöflur.. og svo gerði ég sveppa-piparost sósuna hennar Jónu og allir jafn ánægðir með hana eins og vanalega.. ég gerði meira að segja mikið extra en hún kláraðist samt..:D Svo var spjall og svona og svo fór ég reyndar að sofa á skikkanlegum tíma.. Ég, Lulle, Tette og Filip skemmtum okkur samt fyrst yfir bráðskemmtilegri bók um mismæli á ensku!!:P

Ætla að taka eitt mjög fyndið dæmi:

Please do not ride the lift when it is not turned on - reglur um skíðalyftu í Noregi!! hahaha, hvernig á maður svo sem að fara að því!!:P

Jæja í dag fékk ég svona ógeðslega í magann.. skildi ekkert í þessu, Lulle gaf mér töflur en ekkert vildi lagast.. svo ég gat ekkert borðað allan daginn.. nema seint um kvöldið kom ég niður banana og jógúrt.. og smá melónu.. En flest allir í fjölskyldunni voru eitthvað slæmir í maganum.. svo ég fór ekki í skólann í dag og Jessica ekki sátt við mig:p en allavega, dagurinn er búinn að fara í : að liggja í sófanum og reyna að hreyfa mig sem minnst og horfa á sjónvarpið.. á svona dögum þakkar maður guði fyrir að vera með svona margar stöðvar og bíómyndir:D Allavega, ég er orðin nógu stressuð fyrir þennan blessaða fyrirlestur um Ísland á morgun.. vonum bara að þetta gangi vel.. því annars fer ég ekkert meira í þennan skóla:P ég er búin að fá Jessicu og Natalie til að lofa að spurja einhverja spurninga svo ég líti ekki út eins og asni þarna:p hehe..

Svo er ég farin að hafa áhyggjur af því að ég sé að missa hárið.. það fellur skuggalega mikið niður þegar ég þurrka það og greiði.. MAMMA HJÁÁÁLP!!:P

Svo bíð ég enn eftir blessaða pakkanum frá Jónu! Þetta er löngu hætt að vera fyndið.. er eiginlega bara orðin pirruð.. kíki í póstkassann á hverjum degi!!

og þriðja sem gerir mig stressaða og áhyggjufulla eru lítil og ógeðsleg skordýr sem heita Fästingar eða festingar.. nafnið skýrir mest allt, þeir festa sig á mann, sjúga blóð og bera með sér einhvern ógeðis sjúkdóm sem getur valdið miklum skaða ef maður ekki fær lyf og rétta meðhöndlun.. Já haldiði þá ekki að Lulle hafi fundið einn svona á mér í dag og kippt honum af! Svo núna þarf að tékka á mér hvort ég fái útbrot af þessu því ef svo er þá þarf ég að fá pensilín og ég skal lofa ykkur því að ÞAÐ Á EKKI EFTIR AÐ VERÐA ÓDÝRT HÉRNA..!! já.. svona getur lífið verið erfitt stundum:p maður má nú væla af og til, er það ekki:p hahaha.. allavega er ég búin að fá Jessicu til að segja mér oft og mörgum sinnum í dag að hún vorkenni mér:p hehe já það gerir allt betra:P neinei:p ég spjara mig;) læt engar pöddur stoppa mig:D

Svo er teljarinn kominn inn enn einu sinni.. hann virðist detta út af og til.. frekar pirrandi en ég er þrjóskari;) Jæja Ada, er þetta nógu gott fyrir ykkur í Nördabjerginu?:P

Jæja segi þetta gott.. vona að þið hafið notið lestursins:* Knús og kossar!


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 22:49:40 / Dóra Hrund

40 dagar eftir..!!:O

Ég er svo ofboðslega þreytt.. en samt svo andvaka.. eða þreytt? Svaf örugglega meira en 12 tíma seinustu nótt svo ég gæti verið að jafna mig út:P hehe..

Bæði í dag og í gær var ég í fríi.. í gær var ég reyndar sú eina sem var í fríi svo mér leiddist frekar mikið.. hjólaði upp að vatninu mínu og sat þar í dágóða stund og hlustaði á Lisu Ekdahl.. Finnst hún algjört æði.. svo rólegt og fínt;) Svo labbaði ég og hljóp til skiptis í kringum vatnið.. Allt orðið svo ótrúlega grænt og fallegt;) Svo hjólaði ég aftur heim - með hjálm og alles! Já hérna er málið að vera með hjálm.. annars ertu asni:P Svo kláraði ég loksins þennan blessaða fyrirlestur um Ísland.. þá er bara að æfa sig á milljón;) Fengum indverskan mat um kvöldið.. oo svo gott;) Tandoori kjúklingur og hrísgrjón og sósa;) Gæti borðað þetta á hverjum degi:P Já, Lulle systir Ninu og fjölskyldan hennar eru flutt inn til okkar.. Já þau eru að pakka saman dótinu sínu og senda alla leið til Japan.. Þangað ætla þau að flytja eftir ca 2 vikur eða jafnvel minna? Allavega, núna búa 4 extra persónur hérna og það má segja að hér er kátt í höllinni.. hehe;) Elsa að farast á gelgjunni og Filip nýtir sér það óspart.. hehe ég segi ekki neitt því ég er bara fegin þegar ég fæ frí..:P

Í dag var rigning og ömurlegt veður.. þoli ekki rigningu.. þá er allt svo down eitthvað.. ég svaf lengi, var vakin í morgunmat um hálf 11.. svo var ég bara eitthvað að græsa og dunda mér.. láta mér mest leiðast, hugsa og hlusta á Lisu. spennandi?

Svo fórum við Nina að versla.. nema hún gleymdi veskinu svo við keyrðum aftur heim og náðum í það og fórum svo loksins í búðina;) Þar keyptum við heilan helling, fórum með lista yfir nokkra hluti en enduðum á fullri kerru:P hehe, Björn sagði að það væri hættulegt að senda okkur að versla saman:P Hann er loksins kominn á fullt í að græja baðherbergið niðri sem er víst búið að standa tómt í að verða 2 ár.. hehe, allt í ryki og ógeði og allt lyktaði eins og á verkstæðinu hjá pabba þegar hann vann á Grím.. hehe;) já svona man maður:P

Svo kom nánast öll fjölskyldan í mat sem er indælt eins og alltaf;) borðuðum fylltar  kjúklingabringur með kartöflum og salati og svo var rabbabarapæ í eftirrétt;) ekki slæmt.. Svo lék ég við Sixten í smá tíma.. þangað til þau fóru heim.. þá sat ég og spjallaði við Ninu, Björn, Lulle og Tette.. alltaf jafn næs;)

Svo spjallaði ég smá við mömmu á skype og Bóas, en mamma var svo upptekin að hún var horfin eftir smá stund..:p hehe..

Á morgun ætla ég að vakna snemma og svo fara niður í bæ;) Hitta hina AFS krakkana og við ætlum í Liseberg;) sem verður vonandi rosalegt stuð.. er amk pottþétt á því ég fari ekki í eina einustu græju sem snýst í hringi!!! hehe;)

Svo á laugardaginn ætla ég loksins til Jörlanda að heimsækja gömlu fjölskylduna.. Karin systir mín er nú samt á Íslandi með kórnum sínum.. ekkert smá kúl;) hehe.. hún spurði mig eimmitt hvað vatnsflaska á íslandi kostaði.. hehe ég var fljót að segja henni að kaupa ekki vatn!!! hún gæti drukkið úr öllum krönum!!;) En allavega, ég ætla að vera þar í heimsókn og svo fer ég út að borða með þeim og Mayu og fjölskyldunni hennar.. og mömmu Mayu og stjúppabba hennar sem voru að koma í dag frá USA.. svo verður bussinn bara tekinn inní bæ að hitta stelpurnar mínar, Jessicu og Natalie.. ætlum að sjálfsögðu út að dansa á Gamle Port.. með frímiða og alles;) hehe.. held þetta verði alveg frábær helgi bara.. hehe eins og þær flestar;) Hér eru allavega plönin mín.. svo á mánudaginn er Maya að fara á útskriftarballið sitt og ég lofaði að fara þangað og græja hana:) Hver veit nema ég kíki aftur við hjá gömlu fjölskyldunni, Karen kemur nefnilega heim á mánudaginn;)

Jæja segi þetta gott fyrir ykkur í bili.. sjáumst eftir allt of stuttan tíma:P

Dóra


» 16 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 17:38:05 / Dóra Hrund

Búin á því!

Jæja helgin er búin að vera rosalega fín;) er búin að gera heilan helling af skemmtilegum hlutum;) eiginlega bara of mikið af skemmtilegum hlutum svo núna hef ég nánast enga orku.. er bara að bíða eftir að maturinn komi og svo ætla ég beint í háttinn.. bara hef ekki meiri orku:P en til að halda mér vakandi þá ætla ég að skrifa smá um helgina;)

Á föstudagsmorgun kom Maglen til mín. Ég hitti hana í bænum og svo skoðuðum við okkur smá um og svo fórum við heim til mín og gerðum okkur sjúklega gott pastasalat með kjúkling og fetaosti;) Svo gláptum við bara á sjónvarpið eitthvað fram eftir degi. Þá hringdi Maya í mig og spurði hvort við nenntum eitthvað að hitta hana, svo við ákváðum að bjóða henni með okkur í bíó.. svo hringdi Ida "gamla" systir mín úr Jörlanda og ég bauð henni bara líka með:D rosa gott að hitta hana aftur;) En fyrst fórum við til Titti og Goran og strákanna og borðuðum Indverskan mat heima hjá þeim;) Maglen fannst sá indverski bara góður:D hehe mér finnst þetta náttúrulega sjúklega gott;) Allavega svo tókum við strætó inní bæ og hittum stelpurnar.. svo var keypt popp og kók og skundað inní sal á Blades of glory.. hún var mjög góð en frekar stutt fannst mér.. fyndið að geta þess að Maya talaði um að þetta yrði ömurleg mynd og blablabla.. svona eins og hún er vön:P svo var hún sú sem hló lang mest að þessari mynd.. hehe..:p

Svo var haldið heim í háttinn, það tók okkur reyndar marga tíma að komast heim og við þurftum meðal annars að labba einhverja 3 eða 4 kílómetra takk! Helvítis strætóar og sporvagnar, koma aldrei á réttum tíma.. já eða bara koma ekki neitt!! úff hlakka til að koma heim þar sem það er ekki langt að labba NEITT!!;)

Svo vöknuðum við morguninn eftir, borðuðum morgunmat og svo ákváðum við að skella okkur í Liseberg.. Nina var svo góð að skutla okkur;) þar var sjúklega gaman!! enda ekki við öðru að búast.. en svo drifum við okkur heim til "ömmu og afa" því "amman mín" hún Gudrun átti afmæli og við vorum boðin í mat.. þar fengum við ægilega góðan steiktan fisk, kartöflur og svo smjörsteikta kantarell sveppi.. við erum að tala um mat sem hitti aaaalgjörlega í mark hjá mér!!! ég meina, fiskur, sem var þar að auki hriiikalega góður;) og sveppirnir með voru bara til þess að toppa þetta.. svo var súkkulaði ís í eftirrétt og ég gjööörsamlega pökkuð!

Þá drifum við Maglen okkur heim, fórum í sturtu og græjuðum okkur.. Filip var með vini sína heima að lana (tölvunörd) og þeir tuðuðu ALLAN tímann.. mætti halda þeir hafi aldrei séð stelpur græja sig áður:P hehe.. Allavega, ég fékk yfirheyrslu! frá LITLA bróður mínum!! hvert ég væri að fara, hvað ég væri að fara að gera, hvort ég væri að fara að drekka, hvort ég mætti vera inni á klúbbnum, hvenær ég ætlaði að koma heim.... HAHAHAHAHAHA!!!! Ég hló nú bara.. hehe sæi Bóas í anda vera með einhvern svona fyrirlestur!!:P

Allavega við tókum strætó inní bæ, komumst svona skemmtilega frítt inn því Dóra er meðlimur í efterfesten;) Gamle port er sko staðurinn verð ég að segja ykkur.. finnst hann æææði! Þarna eru 2 dansgólf, á einu eru góð techno lög og svoleiðis og svo á hinni voru alls kyns hittarar, júróvisjón, gömul sænsk lög, ný sænsk lög og eitthvað fleira.. amk tær snilld!! Dönsuðum og dönsuðum.. vorum komnar heim um 4 leytið og fórum sko beint að sofa..

Já ég náði að sofa um 4 tíma.. var vakin hálf 9 í morgunmat.. ég leyfði Maglen að sofa pínu lengur bara..:) svo kom Titti með þessar svakalegu hestagræjur! Ég leit út eins og algjört proffs.. Í svona ´reiðbuxum, reiðstígvélum, með hjálm og í of stórum regnjakka sem Björn á:P Allavega, ég kvaddi Maglen því Björn ætlaði að skutla henni til Kungsbacka aðeins seinna:) svo drifum við okkur af stað.. fundum loksins staðinn og þar voru svona fallegir íslenskir hestar;) byrjuðum á að bursta þá og allt það.. það fannst mér æði;) enda hef ég ekki gert svona áður.. bara hoppað á bak.. svo var allt græjað.. ég fékk fallegasta hestinn fannst mér:D Hvítan hest sem heitir Fjöður;) en hún var svolítið löt svo hún nennti ekkert endilega að hlaupa svo hratt upp allar brekkurnar eins og hinir hestarnir..;) en við vorum á ferðinni í rúmlega 2 eða 3 tíma;) sem var alveg æði! Og núna er ég ekki lengur hrædd við hesta!;) næst eru það hundarnir:p hehe nei segi svona:P en núna er ég með strengi útum allt, mikla vöðvabólgu og á erfitt með að sitja.. en þetta var þess virði;)

núna er ég hinsvegar svooo þreytt að ég er að spá í að fá me´r bara ekkert að borða og skella mér bara í háttinn:P allavega bið ég að heilsa ykkur.. þið sem eruð búin í prófum og þar með komin í sumarfrí .. Til hamingju:* núna eru 44 dagar eftir af þessari dvöl minni og vitiði, ég er bara að verða sátt við að koma heim;) ég meina, hef alltaf hlakkað til, en núna finnst mér þetta bara vera fínt að koma heim:D svo það er nú ekki slæmt.. Allavega ég er hætt þessu blaðri.. finnst ég sko eiga skilið mörg komment fyrir þetta blogg!;)

Dóra knapi:P


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 14:28:57 / Dóra Hrund

Marmarakaka

Já hæhæ:)

 ég er búin að vera svo sjúklega löt að ég hef ekki nennt að pikka inn eitt einasta blogg!

Enda svo sem ekkert mikið að frétta ef ég á að segja eins og er:P

Já ég er í flottu ástandi:P ég ákvað að drífa mig út og fara að lyfta, byggja mig upp fyrir vinnuna í sumar, enda veitir ekkert af;) ég lyfti svona og lyfti og kom liggur við skjálfandi á beinunum út og svona líka ánægð með mig.. nema, þegar ég vaknaði daginn eftir var ég ekki lengur jafn ánægð með mig.. ég var með strengi gjörsamlega útum ALLT!! en þar sem ég er mikil hetja þá harka ég bara af mér og ætla að drífa mig aftur um leið og strengirnir skána pínu;) hehe

svo er ég líka svona sætt brennd í andlitinu, nánar tiltekið á kinnunum:D með svona flottar eplakinnar (not) ..

Í dag var ég í fríi því krakkarnir voru í samræmdu prófi í stærðfræði.. jamm fínt að vera í fríi og sofa út og svona.. svo er ég bara búin að vera að dunda mér.. er eimmitt að baka svona fína marmaraköku og húsið lyktar svona yndislega;) hehe.. vonum þá hún verði góð:P

 Svo kemur Maglen frá Venezuela í heimsókn á morgun, föstudag og ætlar að vera hjá mér yfir helgina..;) langar voðalega að fá að græja rækjuréttinn hennar Jónu.. varð ekkert smá sólgin í svoleiðis um daginn:P

Svo dreymir mig svona líka skemmtilega drauma núna undanfarið;) alveg tær snilld;)

Heyrðu svo er víst júró í kvöld.. ætla að plata elsu í að horfa með mér:D

æji nú nenni ég ekki meir:D

knús og kossar!

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13